Fara beint í efnið

Leiðbeiningar við útfyllingu á útflutningsskýrslu

Þjónustuaðili:

Útflutningsskýrsla er lögboðið skjal við sérhvern útflutning í atvinnuskyni. Hægt er að skila henni rafrænt eða á pappír, eyðublað E-2.1

Ef þú ert með heimild til rafrænnar tollafgreiðslu sendir þú skýrsluna rafrænt beint til Skattsins. Ef ekki, skilarðu útfylltu E-2.1 eyðublaði við tollstöð.

Reitir sem ekki koma fram í leiðbeiningum eru ekki notaðir við útflutning.

    Vörur, tollflokkun og verð - reitir 31 til 47

    Reitir 31 til 47 gilda um hvert tollskrárnúmer fyrir sig. Nota framhaldseyðublað E-2.2 eða E-2.4 þegar sending inniheldur fleiri en þrjú tollskrárnúmer.

    Hér skal færa inn lykil magntölu og þar á eftir magntölur með tveimur aukastöfum, eftir því sem við á:

    • stykkjatölu (STK),

    • rúmmetratölu (RUM),

    • lítratölu (LIT),

    • prósentustyrk áfengis (PRO),

    • paratölu vörutegunda (PAR), eða

    • sérgreinda nettóþyngd vegna rafgeyma (NET), sbr. auglýsingu nr. 632/1997 um skráningu einingartölu vara í aðflutnings- og útflutningsskýrslum.

    Beri að gefa upp fleiri en eina magntölu vegna vöru í sama tollskrárnúmeri skal færa þær fyrir neðan í reit 44.

    Gerð svæðis: (n..11,2)