Fara beint í efnið

Leiðbeiningar við útfyllingu á útflutningsskýrslu

Þjónustuaðili:

Útflutningsskýrsla er lögboðið skjal við sérhvern útflutning í atvinnuskyni. Hægt er að skila henni rafrænt eða á pappír, eyðublað E-2.1

Ef þú ert með heimild til rafrænnar tollafgreiðslu sendir þú skýrsluna rafrænt beint til Skattsins. Ef ekki, skilarðu útfylltu E-2.1 eyðublaði við tollstöð.

Reitir sem ekki koma fram í leiðbeiningum eru ekki notaðir við útflutning.

    Vörur, tollflokkun og verð - reitir 31 til 47

    Reitir 31 til 47 gilda um hvert tollskrárnúmer fyrir sig. Nota framhaldseyðublað E-2.2 eða E-2.4 þegar sending inniheldur fleiri en þrjú tollskrárnúmer.

    Tveggja stafa tala sem segir til um tollmeðferð útflutningsvöru.

    Venjulegur útflutningur

    Lykill

    Sala á íslenskri vöru til útlanda

    10

    Vörur sendar án endurgjalds, gjafir, prentvara o.fl.

    11

    Búslóðir og farangur

    12

    Bifreiðar á íslenskum númerum

    13

    Vörur til sendiráða og ræðismanna

    14

    Endurseldar vörur

    Áður innfluttar vörur endurseldar til útlanda

    15

    Tímabundinn útflutningur

    Vara til tímabundinna nota erlendis í allt að 12 mánuði (á sýningu, til kynningar, í vísindaskyni, að láni)

    20

    Vara send til útlanda til aðvinnslu, þó ekki spunavara, sbr. lykil 23

    21

    Vara send til útlanda til viðgerðar

    22

    Spunavara send til útlanda til aðvinnslu

    23

    Endursendar vörur

    Áður innfluttar vörur endursendar til útlanda, t.d. vegna ábyrgðar

    30

    Önnur endurútflutt vara

    Vara endurútflutt eftir aðvinnslu á Íslandi

    31

    Vara endurútflutt eftir viðgerð á Íslandi

    32

    Vara endurútflutt eftir aðvinnslu á Íslandi og endurgreiðslu eða niðurfellingu tolla

    33

    Vara endurútflutt úr tollvörugeymslu

    34

    Önnur vara endurútflutt eftir tímabundinn innflutning, t.d. sýningarvörur

    35

    Gerð svæðis: (a2)