Fara beint í efnið

Greiðsluþátttaka vegna næringar og sérfæðis

Umsókn um styrk til kaupa á hjálpartæki í Gagnagátt

Sjúkratryggingar niðurgreiða lífsnauðsynleg næringarefni og sérfæði þegar sjúkdómar eða afleiðingar slysa valda verulegum vandkvæðum við fæðuinntöku og upptöku næringarefna og þegar um langvarandi þörf er að ræða, að minnsta kosti þrjá mánuði.

Eftirfarandi er niðurgreitt:

  • Amínósýrublanda vegna efnaskiptagalla

  • Næring um slöngu (sondunæring) ásamt fylgihlutum og dælu

  • Fylgihlutir vegna næringar í æð

  • Næringardrykkir, almennir og sérhæfðir

  • Þykkingarefni vegna kyngingarerfiðleika

  • Próteinskert fæði vegna efnaskiptagalla

  • Peptíðmjólk/amínósýrublanda vegna mjólkurofnæmis fyrir börn 0-2 ára

Umsóknarferli

  • Læknir, næringarfræðingur eða annar heilbrigðisstarfsmaður metur þörf og sendir umsókn
    -Þegar um er að ræða mjólkurofnæmi barna skal ofnæmi staðfest af ofnæmislækni, barnaofnæmislækni eða meltingarlækni

  • Umsókn er send rafrænt (Leiðbeiningar fyrir heilbrigðisstarfsmenn vegna Gagnagáttar)

  • Svarbréf með upplýsingum um ákvörðun er birt í Stafræna pósthólfinu á Ísland.is

  • Gefnar eru út innkaupaheimild/ir vegna næringarefna og sérfæðis þar sem fram kemur hver greiðsluþátttaka og gildistími er

  • Einstaklingar sjá samþykktar heimildir, stöðu þeirra, gildistíma á Mínum síðum

Kaup á næringarefnum/sérfæði

Við kaup er kennitala gefin upp hjá seljanda sem flettir heimildum upp í Gagnagátt. Einstaklingar greiða sinn hlut beint til seljanda þegar það á við. Seljendur senda Sjúkratryggingum reikning vegna kaupa.

Heimild til úttektar

Heimild til úttektar miðast við reikninga sem hafa borist Sjúkratryggingum og verið greiddir. Heimild til úttektar getur verið hærri heldur en hámarksupphæð á mánuði en um er að ræða 3ja mánaða svigrúm svo heimildin nýtist sem best.

Heimild til úttektar tekur mið af

  • mánuðinum á undan og upphæð sem er ónýtt þar

  • núverandi mánuði

  • næsta mánuði á eftir vegna heimildar til að taka út 2ja mánaða skammt

Kvittanir fyrir kaupum

Hafi kaup verið staðgreidd af notanda er hægt að senda kvittanir til Sjúkratrygginga:

  • með rafrænum skilum á skrá í Réttindagátt (tegund skila: Einnota hjálpartæki)

  • til þjónustuvers Sjúkratrygginga

Mikilvægt er að kennitala þess sem á heimildina komi fram ásamt bankaupplýsingum fyrir endurgreiðslu.

Þjónustuaðili

Sjúkra­trygg­ingar