Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Sjúkratryggingar Forsíða
Sjúkratryggingar Forsíða

Sjúkratryggingar

Sálfræðiþjónusta

Upplýsingar um sálfræðiþjónustu fyrir einstaklinga

Skilyrði

Sjúkratryggingar hafa heimild til að greiða niður sálfræðiþjónustu við viss skilyrði.  

  • Einstaklingur þarf að fá tilvísun um þörf á sálfræðiþjónustu. 

  • Einstaklingur þarf að fara til sálfræðings sem er á samning við Sjúkratryggingar.  

Tilvísanir

Tilvísanir þurfa að vera frá: 

  • Heilsugæslu. Ef barn eða fullorðinn þarf sálfræðiþjónustu vegna kvíðaröskunar eða þunglyndis.  

  • Þverfaglegu greiningarteymi eða barnageðlækni. Ef barn er með alvarlegar geð-, hegðunar og þroskaraskanir.  

Foreldrum og forráðamönnum er bent á að kynna sér hvaða sálfræðingar hafa heimild samkvæmt rammasamningnum til að sinna börnum með alvarlegar geð-, hegðunar- og þroskaraskanir. 

Þverfagleg greiningarteymi  

  • Geðheilsumiðstöð barna 

  • Barna og unglingageðdeild Landspítala 

  • Heilbrigðisstofnun Austurlands

  • Heilbrigðisstofnun Suðurlands 

  • Barnaspítali Hringsins 

  • Sjúkrahúsið á Akureyri 

  • Ráðgjafar- og greiningarstöð ríkisins 

Hvað gilda tilvísanir lengi? 

Tilvísunin gildir í 12 mánuði eftir fyrsta meðferðartíma. Það þarf að hafa virka tilvísun til að Sjúkratryggingar greiði niður sálfræðikostnað. 

Hvað er greitt fyrir marga meðferðartíma hjá sálfræðingi? 

  • Börn: Mest 10 tímar. 

  • 18 ára og eldri: Mest 12 tímar.  

Til að koma á móti við vaxandi þörf ungs fólks fyrir sálfræðiþjónustu er áhersla lögð á að þau njóti forgangs að þjónustunni. 

Sálfræðingar á samningi

Niðurgreiðsla Sjúkratrygginga nær til þjónustu frá eftirfarandi sálfræðingum.

Sálfræðingar geta sótt um aðild að rammasamingi Sjúkratrygginga

Ef þú finnur ekki þær upplýsingar sem þig vantar þá geturðu sent Sjúkratryggingum fyrirspurn