Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

9. október 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Vestfirðir – lagt hald á fíkniefni.

Par var handtekið á Hólmavík í gærdag, þá nýkomið til þorpsins. Það var í annarlegu ástandi og hafði verið tilkynnt um undarlega hegðun þess. Hafði farið í leyfisleysi inn í húsnæði fyrirtækja á staðnum og gert sig líklegt til að taka þar verðmæti. Í fórum þess fundu lögreglumenn allnokkurt magn fíkniefna, eða um 50 gr. af efni sem talið er vera amfetamín og um 6 gr. af kannabisefnum. Í ljósi efnismagnsins grunar lögreglu að það hafi verið ætlað til sölu. Auk þessa var parið með tvo hnífa á sér.

Lagt var hald á efnin og bitvopnin. Parið var yfirheyrt og því sleppt lausu seinni partinn í gær. Fólkið hefur ítrekað komið við sögu lögreglu vegna ýmissa brota, s.s. fíkniefnamála og ofbeldisbrota.

Minnt er á upplýsingasíma lögreglu, 800 5005, sem allir geta hringt í og gefið upplýsingar, undir nafnleynd, um alla meðhöndlun fíkniefna á landinu.