Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. nóvember 2018

Þessi frétt er meira en árs gömul

Vegna rannsókna á bruna að Kirkjuvegi 18 á Selfossi í gær.

Búið er að flytja líkamsleifar þeirra er létust í bruna á Kirkjuvegi í gær af vettvangi og bíða krufningar. Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vinnur að vettvangsrannsókn ásamt sérfræðingum Mannvirkjastofnunar. Búið er að taka skýrslu af öðrum þeirra sem er í haldi lögreglu vegna brunans og skýrslutökur yfir hinum aðilanum standa yfir. Gera má ráð fyrir að báðir aðilarnir verði leiddir fyrir dómara síðar í dag og gæsluvarðhalds krafist yfir þeim í þágu rannsóknar málsins. Rökstuddur grunur er um að eldsupptök séu af mannavöldum.