6. ágúst 2026
6. ágúst 2026
Vefsvæði um almyrkvann hjá Veðurstofunni
Veðurstofan hefur útbúið vefsvæði sem eru tileinkað almyrkvanum 12. ágúst. Hægt verður að nálgast staðarspár og upplýsingar frá veðurvakt en líka kort, vefmyndavélar, tímasetningar og hvernig er öruggt að fylgjast með þessum einstæða atburði.

Veðurstofan mun fylgjast grannt með veðurspám í aðdraganda almyrkva og hefur opnað vefsvæði tileinkað honum.
Hér er til að mynda hægt að nálgast allar staðarspár, veðurhorfur, skýjahuluspá og upplýsingar frá veðurvakt. Þarna verður líka að finna margskonar fróðleik sem tengist almyrkvanum, vefmyndavélar, tímasetningar, upplýsingar um hvernig er öruggt að fylgjast með og tengla á aðra sem koma að undirbúningi.
Sem fyrr eru það tilmæli til fólks á almyrkvaslóð að það fylgist með almyrkvanum í sínu nærumhverfi og dragi þannig úr álagi á helstu innviði. Þau sem hyggja á ferðalög þurfa að gera ráð fyrir lengri ferðatíma og verða viðbúnir umferðartöfum, bæði á leið á áfangastað og heim. Þá er rétt að ítreka þá ábendingu að kynna sér vel leiðbeiningar um verndun augnheilsunnar.