Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. júní 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Varðandi fréttaflutning af atburði er gerðist í Hnífsdal.

Fram hefur komið í fjölmiðlum í dag að maður sá er situr í gæsluvarðhaldi á Ísafirði vegna atburðar sem átti sér stað í Hnífsdal að kveldi föstudagsins síðasta, muni að öllum líkindum verða ákærður fyrir tilraun til manndráps. Lögreglan á Vestfjörðum vísar þessum fréttaflutningi á bug, enda er málið enn á rannsóknarstigi og það því ekki komið til meðferðar hjá þeim aðila sem munu taka ákvörðun um ákæru.