Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. janúar 2025

Uppbygging ferðaþjónustu í landi Skriðu í Hornafirði

Ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun tók þann 23. janúar 2025 ákvörðun um að uppbygging ferðaþjónustu í landi Skriðu í Hornafirði skuli háð mati á umhverfisáhrifum.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er til 24. febrúar 2025.

Greinargerð framkvæmdaraðila, umsagnir, svör við umsögnum og ákvörðun Skipulagsstofnunar eru aðgengileg í Skipulagsgátt.