Fara beint í efnið

28. mars 2025

Þessi frétt er meira en árs gömul

Umsókn um skráningu á VSK-skrá og launagreiðendaskrá nú rafræn

Við höfum nú opnað fyrir rafræna nýskráningu á virðisaukaskattsskrá og launagreiðendaskrá í gegnum þjónustuvef Skattsins.

Einstaklingar finna umsóknina á sínum þjónustuvef eftir innskráningu með rafrænum skilríkjum eða veflykli.

Í tilviki lögaðila þarf annað hvort að skrá sig inn:

  • á veflykli/skilalykil viðkomandi félags

  • með rafrænum skilríkjum prókúruhafa
    Ef félagið er nýstofnað má óska eftir veflykil/skilalykil á skatturinn@skatturinn.is.

Opna umsókn

Enn sem komið er einungis er hægt að sækja um rafrænt vegna nýskráninga og endur-skráninga á virðisaukaskattsskrá og/eða launagreiðendaskrá. Aðrar skráningar þurfa að berast með eyðublaði RSK 5.02.

Fylgigögn með umsókn

Eigi eftirfarandi við um umsóknina þurfa fylgigögn að fylgja umsókninni:

  • Skráning aftur í tímann – Skýrslur/skilagreinar vegna gjaldfallinna tímabila.

  • Kostnaður á fyrstu 12 mánuðum hærri en tekjur – Sundurliðuð rekstraráætlun.

Stafrænt pósthólf

Frá og með 1. janúar 2025 birtast fyrirspurnarbréf frá Skattinum í Stafræna pósthólfinu á Ísland.is.

Staðfesting á skráningu á virðisaukaskattsskrá og/eða launagreiðendaskrá er send í Stafrænt pósthólf á Ísland.is.