Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. desember 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Umferðaróhöpp og umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið saman upplýsingar um umferðaróhöpp og umferðarslys sem tilkynnt voru í umdæminu á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2007, borin saman við sama tímabil áranna 2000 til 2006.

Í þeirri samantekt kemur í ljós að umferðaróhöppum hefur fjölgað um tæplega níu prósent frá árinu 2000 eða úr 7.423 óhöppum árið 2000 í 8.198 óhöpp árið 2007. Á sama tíma hefur ökutækjum á höfuðborgarsvæðinu hins vegar fjölgað um tæplega 51 prósent. Sé tekið tillit til þeirrar þróunar í fjölda umferðaróhappa kemur í ljós að tilkynntum óhöppum miðað við 100 þúsund ökutæki hefur fækkað um tæplega 27 prósent frá árinu 2000.