21. maí 2013
21. maí 2013
Þessi frétt er meira en árs gömul
Umferðaróhapp – vitni óskast
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á gatnamótum Suðurlandsbrautar og Grensásvegar í Reykjavík um kl. 17 sunnudaginn 12. maí sl. Þar rákust saman blár Nissan Primera og hvítur Mercedes Benz, en ökumönnunum ber ekki saman um stöðu umferðarljósa. Benzinn var á leið austur Suðurlandsbraut en Nissan-bíllinn kom úr vesturátt. Ökumaður síðarnefnda ökutækisins var á beygjuakrein og hugðist aka Grensásveg í suður þegar áreksturinn varð.
Þeir sem urðu vitni að óhappinu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is
Frá vettvangi.