Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

3. mars 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Umferðaróhapp – vitni óskast

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á Reykjanesbraut í Garðabæ um tíuleytið sl. mánudagsmorgun, 28. febrúar. Þar hafnaði grængrár Hyundai á grindverki, á móts við Hnoðraholt, þegar ökumaður hans reyndi að forðast árekstur við Toyota Land Cruiser 120 jeppa. Þarna eru tvær akgreinar í suðurátt en jeppanum var ekið framúr Hyundai-bílnum og síðan skyndilega í veg fyrir hann með fyrrgreindum afleiðingum. Talið er að jeppinn sé silfurgrár að lit og að ökumaður hans sé karl kominn yfir miðjan aldur. Þeir sem urðu vitni að óhappinu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.

Frá vettvangi.

Bíllinn er talsvert skemmdur.