Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. desember 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Týndir þú sófa?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar eiganda sófa, sem fannst á Vesturlandsvegi í Kollafirði þriðjudaginn 18. nóvember sl. Tilkynning um sófann barst kl. 18.42 en ætla má að hann hafi fallið af bíl eða kerru. Þeir sem geta veitt upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1188 á skrifstofutíma, en upplýsingum má einnig koma á framfæri á netfangiðeinar.asbjornsson@lrh.is