Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

24. maí 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Togskip staðið að meintum ólöglegum veiðum út af suð-austurlandi

Laust eftir kl. 10:00 í morgum stóð þyrla Landhelgisgæslunnar TF-Líf togskipið Smáey VE að meintum ólöglegum veiðum út á Lónsbugt við Hvítinga. Skipið er talið hafa verið að veiðum innan við 3 sml. frá landi. Skipinu var vísað til Hafnar í Hornafirði þar sem málið verður rannsakað frekar af lögreglunni á Höfn. Málið er á forræði lögreglustjórans á Eskifirði.