9. maí 2008
9. maí 2008
Þessi frétt er meira en árs gömul
Svokölluðu „Sauðaþjófnaðarmáli“ á Höfn, lokið.
Þann 15 apríl s.l. lauk rannsókn svonefnds “ Sauðaþjófnaðarmáls“ hjá embætti lögreglustjórans á Eskifirði, sem upp kom s.l. haust á Hornafirði. Ákvörðun var tekin um að fella kærumálið niður á grundvelli 112 gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991, en það sem kom fram við rannsókn málsins þótti ekki nægilegt eða líklegt til sakfellis. Ákvörðun lögreglustjóra er kæranleg til ríkissaksóknara innan mánaðar.