Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

3. maí 2022

Þessi frétt er meira en árs gömul

Stefna og framtíðarsýn Hljóðbókasafns Íslands 2022

Hljóðbókasafn Íslands hefur sent frá sér bækling sem nefnist Stefna og framtíðarsýn Hljóðbókasafns Íslands 2022-2025.

Verkefnið unnu starfsmenn safnsins ásamt stjórnunarráðgjafa og hjálpuðust að við að móta stefnu fyrir safnið næstu árin. Einnig var fundað með samráðshópi en þar eiga fulltrúa Blindrafélagið, Félag lesblindra, Félag bókasafns- og upplýsingafræða, Þjónustu- og þekkingarmiðstöð og Félag sérkennara. Niðurstöðuna úr þessari vinnu má nálgast með því að smella á þennan hlekk: Stefnumótun. Einnig er hægt að sækja lesna útgáfu, með texta, hér á heimasíðunni eða í appinu.