23. júní 2026
23. júní 2026
Stafrænt Ísland á faraldsfæti
Einstök saga sem vekur athygli

Saga Stafræns Íslands og sá árangur sem náðst hefur vekur sívaxandi athygli utan landsteinanna. Vegferðin okkar er um margt einstök og við reglulega fengin til að segja sögu okkar.
Viðburðarríkt vor
23.–25. mars tók Stafrænt Ísland þátt í pallborðsumræðum á ráðstefnunni Innovation á vegum Global Government Forum. Fulltrúar okkar ræddu hvernig varðveita megi leiðtogamenningu í nýsköpun sem styður hið opinbera við að prófa sig áfram og læra, auk þess hvernig miðla megi nýsköpun innan opinbera geirans. Líflegar umræður sköpuðust í báðum pallborðum og bárust áhugaverðar spurningar úr sal.
5.–6. maí flutti Stafrænt Ísland lokaerindi á nýsköpunarráðstefnunni Nordic Edge Expo í Stavanger í Noregi. Þar koma saman leiðtogar, frumkvöðlar og fjárfestar til að ræða leiðir til að umbreyta samfélögum svo þau verði sjálfbærari, þrautseigari og meira inngildandi. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár var Hope in Action.
26.–27. maí lá leiðin til Skövde í Svíþjóð, þar sem nýsköpunarráðstefnan Sveriges Innovationsriksdag fór fram. Þar flutti Stafrænt Ísland opnunarerindi en á ráðstefnuna kom saman nýsköpunarsamfélag Svíþjóðar og var umfjöllunarefnið nýsköpun í stóra samhenginu.
Okkar áhersla
Kjarni skilaboðannavar að segja söguna af því hvernig uppbygging staðlaðra og skalanlegra tækniinnviða, þar sem notandinn er ávallt í fyrirrúmi, gerir þjóðina vel í stakk búna til að bregðast hratt við þeim atvikum sem upp koma. Skýrt dæmi um það er viðbragðið þegar eldgos ógnaði Grindavík. Á örskömmum tíma var hægt að koma upplýsingum til Grindvíkinga á sérstökum upplýsingasíðum, opna umsóknir um aðgang að bænum, styrki vegna leigu og loks umsóknir um kaup á húsnæði.
Þá sagði Stafrænt Ísland einnig frá stefnu okkar og aðferðum við opinber innkaup og frá rammasamningi um hugbúnaðarþróun sem er aðferð sem vekur athygli víða.