Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

26. febrúar 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna Minni-Ólafsvalla og Vesturkots

Skipulagsstofnun staðfesti 25. febrúar 2025 breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 22. janúar 2025.

Í breytingunni felst að 3,5 ha landbúnaðarsvæði er breytt í 0,6 ha íbúðarbyggð og 2,9 ha verslunar- og þjónustusvæði.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.