Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. mars 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur vegna nærþjónustukjarna innan íbúðarbyggðar í Skerjafirði

Skipulagsstofnun staðfesti 19. mars 2025 breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 sem samþykkt var í borgarráði 23. janúar 2025.

Í breytingunni felst niðurfelling á nærþjónustukjarna að Einarsnesi 36 innan íbúðarbyggðar ÍB7 í Skerjafirði.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.