Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

13. febrúar 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra vegna íbúðarbyggðar í landi Syðstu-Markar

Skipulagsstofnun staðfesti 13. febrúar 2025 breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings eystra 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. desember 2024.

Í breytingunni felst að skilgreind er ný 52,8 ha íbúðarbyggð ÍB25 en landbúnaðarsvæði L1 minnkar sem því nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.