Fara beint í efnið

18. mars 2025

Þessi frétt er meira en árs gömul

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar vegna stækkunar íbúðarbyggðar á Dalvík

Skipulagsstofnun staðfesti 18. mars 2025 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 22. október 2024.

Breytingin felst í að íbúðarbyggð 201-ÍB er stækkuð um 0,5 ha norðan Ægisgötu og við norðurenda Karlsbrautar. Norðan Ægisbrautar verða gerðar lóðir fyrir allt að 6 íbúðir í par- eða raðhúsum á einni til tveimur hæðum og við Karlsbraut 30 verður gerð lóð fyrir einbýlishús á einni til tveimur hæðum.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda