Fara beint í efnið

3. febrúar 2025

Þessi frétt er meira en árs gömul

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Vestmannaeyja vegna Vestmannaeyjalínur 4 og 5

Skipulagsstofnun staðfesti, 20. janúar 2025, breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 sem samþykkt var í bæjarstjórn 11. september 2024.

Í breytingunni felst áform um landtöku og lagningu tveggja 66 kV háspennustrengja frá Gjábakkafjöru að tengivirki á Skansinum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.