Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. október 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna Gýgjarhóls, Gýgjarhóls 1 og Gýgjarhóls 2

Skipulagsstofnun staðfesti staðfesti, 20. október 2025, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. febrúar 2025.

Í breytingunni felst að skilgreind eru þrjú ný verslunar- og þjónustusvæði (VÞ-14, VÞ-15 og VÞ-16) í landi Gýgjarhóls og Gígjarhóls 1 og 2, þar sem fyrirhuguð er uppbygging gistingar, þjónustu og íbúða, samtals 1500 m2 á hverju svæði. Auk þess er skilgreint nýtt 32,6 ha skógræktarsvæði (SL-8) í landi Gýgjarhóls og Gýgjarhóls 1.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.