Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

21. október 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna Depla í Fljótum

Skipulagsstofnun staðfesti 20. október 2025, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. febrúar 2025.

Í breytingunni felst stækkun verslunar- og þjónustusvæðis (VÞ-2) að Deplum úr 3 ha í 3,8 ha og byggingarmagn er aukið úr 3000 m2 í 3500 m2. Afmarkaður er nýr lendingarstaður (FV-1).

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.