Fara beint í efnið

8. desember 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna nýtingarhlutfalls/byggingarmagns á athafna-, iðnaðar- og hafnarsvæðum.

Skipulagsstofnun staðfesti, 8. desember 2025, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036 sem samþykkt var í sveitarstjórn 17. júlí 2025.

Í breytingunni felst að almennir skilmálar um byggingarmagn og hámarks­nýtingarhlutfall á athafna-, iðnaðar- og hafnarsvæðum eru uppfærðir og heimildir hækkaðar á öllum þessum svæðum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.