Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

24. mars 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfus vegna Stóragerðis, lóðar 1, ÍB18

Skipulagsstofnun staðfesti, 24. mars 2025, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfus 2020-2036 sem samþykkt var í bæjarstjórn 27. febrúar 2025.

Í breytingunni felst fjölgun íbúða innan íbúðarbyggðar ÍB18 úr 4 í 5 með heimildum fyrir minniháttar atvinnustarfsemi.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.