Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

21. október 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitafélagsins Hornafjarðar vegna Hvalvörðugilslækjar í Öræfum

Skipulagsstofnun staðfesti, 21. október 2024, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 12. september 2024.

Í breytingunni felst að afmarkað er nýtt verslunar- og þjónustusvæði VÞ49 á 5 ha svæði í landi Hvalvörðugilslækjar, sem áður var landbúnaðarsvæði, með heimildum fyrir 2000 m2 heildar byggingarmagni fyrir ferðaþjónustu.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.