Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. október 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna stækkunar Búðanámu

Skipulagsstofnun staðfesti, 25. september 2025, breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 5. júní 2025.

Í breytingunni felst stækkun á efnistökusvæði E13, Búðanámu, um 3,5 ha og heimilt verður að nýta allt að 60.000 m3 í stað 50.000 m3 áður.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.