Fara beint í efnið

20. janúar 2026

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkurborgar vegna lagfæringa á skilgreindri landnotkun

Skipulagsstofnun staðfesti, 20. janúar 2026, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 sem samþykkt var í borgarráði þann 14. mars 2024.

Í breytingunni felst leiðrétting á sjö landnotkunarreitum innan þéttbýlismarka Reykjavíkurborgar til samræmis við það sem var í eldra aðalskipulagi AR2030. Þeir landnotkunarreitir/svæði sem um ræðir eru Leynimýri K2, Waldorfskóli S25, Suðurhólar ÍB42, Vættaborgir S61, Dalskóli S53 og Holtavegur VÞ33.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.