Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. júní 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar vegna stækkunar miðsvæðis M12, Aðaltorgs

Skipulagsstofnun staðfesti 10. júní 2025, breytingu á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2020-2035 sem samþykkt var í bæjarstjórn 15. apríl 2025.

Í breytingunni felst stækkun miðsvæðis M12 við Aðaltorg um 4,25 ha með auknum heimildum. Nýtingahlutfall fer úr 0,2 í 0,6 með auknu byggingarmagni í allt að 100.000 m2 fyrir 450 íbúðir. Þar af verða 138 þjónustu- og öryggisíbúðir fyrir eldri borgara.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.