Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. apríl 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar vegna aukningar byggingarmagns á athafnasvæði við Kalmanstjörn

Skipulagsstofnun staðfesti, 14. apríl 2025, breytingu á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2020-2035 sem samþykkt var í bæjarstjórn 9. janúar 2024.

Í breytingunni felast áform um fjölgun bygginga innan athafnasvæðis AT13 við Kalmanstjörn en hámarksbyggingarmagn fer úr 12.000 m2 í 17.500 m2.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.