Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. september 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna skógræktar- og landgræðslusvæða að Geitasandi og Geldingalæk

Skipulagsstofnun staðfesti, 18. september 2025, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 9. mars 2025.

Í breytingunni felst skilgreining á um 136 ha skógræktar- og landgræðslusvæði SL29 í landi Geldingalækjar. Þá er skógræktar- og landgræðslusvæði SL5 í landi Geitasands minnkað úr 1010 ha í 660 ha. Landbúnaðarsvæði breytist til samræmis.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.