Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. júlí 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna Lyngáss

Skipulagsstofnun staðfesti 14. júlí 2025 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 9. apríl 2025.

Í breytingunni felst breyting á ákvæðum um fjölda lóða innan íbúðarbyggðar ÍB2 á Lyngási. Áður voru skilgreindar 12 lóðir en heildarfjöldi lóða verður 16.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.