Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

3. mars 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna Gunnarsholts

Skipulagsstofnun staðfesti 3. mars 2025 breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. desember 2024.

Í breytingunni felst nýtt 59,9 ha athafnasvæði (AT1) þar sem gert er ráð fyrir framleiðslu skógarplantna.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.