Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. desember 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna frístundabyggðar í landi Heimahaga

Skipulagsstofnun staðfesti 12. desember 2024 breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 13. nóvember 2024.

Í breytingunni felst skilgreining á 24,7 ha frístundabyggð F83 fyrir allt að 30 frístundalóðir. Landbúnaðarsvæði minnkar sem því nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.