Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. desember 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra vegna miðbæjar Hvolsvallar

Skipulagsstofnun staðfesti 17. desember 2024 breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings eystra 2020-2032 sem samþykkt var í byggðarráði 14. nóvember 2024.

Í breytingunni felst stækkun miðsvæðis M1 á Hvolsvelli um 2 ha og þar er gert ráð fyrir 3 íbúðum. Opið svæði OP3 minnkar til samræmis. Íbúðum er fjölgað í 120 á svæði Hlíðar- og Hvolsvegar, miðsvæði M3.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.