Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. ágúst 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra vegna íbúðarbyggðar við Bergþórugerði, Hvolsvelli

Skipulagsstofnun staðfesti, 1. ágúst 2024, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings eystra 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 13. júní 2024.

Í breytingunni felst að skipulagsákvæðum fyrir íbúðarbyggð (ÍB9) við Bergþórugerði í Hvolsvelli er breytt þannig að hámarksfjöldi íbúða verði 90.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.