Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. júní 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra vegna skipulagsákvæða fyrir dreifbýli

Skipulagsstofnun staðfesti, 10. júní 2025, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings eystra 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 13. febrúar 2025.

Í breytingunni felst að sett eru skýrari skipulagsákvæði varðandi uppbyggingarheimildir í dreifbýli, einkum vegna landfrekrar starfsemi, til að tryggja betur vernd landbúnaðarlands.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.