Fara beint í efnið

27. mars 2025

Þessi frétt er meira en árs gömul

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Ölfuss 2020-2036 vegna frístundabyggðar í landi Akurgerðis

Skipulagsstofnun staðfesti 27. mars 2025 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Ölfuss 2020-2036 sem samþykkt var í bæjarstjórn 26. september 2024.

Í breytingunni felst að núverandi frístundabyggð F3, í landi Akurgerðis er felld út og 8,6 ha breytt í landbúnaðarsvæði sem stækkar sem því nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.