Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. apríl 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Múlaþings vegna Egilsstaðaflugvallar

Skipulagsstofnun staðfesti 10. apríl 2025 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. febrúar 2025.

Í breytingunni felst stækkun á svæði flugvallarins um 3 ha og ný akbraut er afmörkuð á uppdrætti.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.