Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

16. júlí 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar vegna Hólabrúarnámu E13- Innri-Hólmur

Skipulagsstofnun staðfesti 16. júlí 2025 breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 23. apríl 2025.

Í breytingunni felst að efnistökusvæði E13 er stækkað um 2 ha, eða úr 26 í 28 ha. Landbúnaðarland minnkar sem því nemur. Heimilað er að vinna alls 2.250.000m³ af efni í stað 1.200.000 áður.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.