Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. september 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar vegna frístundabyggðar í Skorholtsnesi og Akurey í Grunnavogi

Skipulagsstofnun staðfesti, 1. september 2025, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn þann 11. júní 2025.

Í breytingunni felst að fella út frístundabyggð (F45) og við það stækkar landbúnaðarsvæði (L2) sem því nemur.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.