Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. júlí 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðarkaupstaðar vegna miðsvæðis Valla reitur M2

Skipulagsstofnun staðfesti, 17. júlí 2025, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025, sem samþykkt var í bæjarstjórn 9. apríl 2025.

Í breytingunni felst að á miðsvæði Valla er gert ráð fyrir 1-6 hæða byggingum í stað 2-4 hæða bygginga.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.