Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. desember 2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna stækkunar samfélagsþjónustu S1 við Hrafnistu

Skipulagsstofnun staðfesti 10. desember 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem samþykkt var í bæjarstjórn 9. október 2024.

Í breytingunni felst stækkun samfélagsþjónustusvæðis S1 um 0,12 ha og minnkun opins svæðis OP1 um 0,12 ha.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.