Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. apríl 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna íbúðarbyggðar í Þorlákstúni

Skipulagsstofnun staðfesti, 2. apríl 2025, breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem samþykkt var í bæjarstjórn 15. janúar 2025.

Í breytingunni felst að mörkuð er stefna um nýtt 6 ha svæði sem fella á inn í íbúðarbyggð ÍB7 sem verður alls 66 ha. Skógræktar- og landgræðslusvæði SL4 fellur út við breytinguna.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda