Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

4. desember 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna breytinga á íbúðagerðum í Áslandi 4

Skipulagsstofnun staðfesti 3. desember 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem samþykkt var í bæjarstjórn 3. október 2024.

Í breytingunni felst breyting á íbúðasamsetningu og þéttleika innan íbúðasvæðis ÍB11.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.