Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. desember 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna skilmálabreytingar á M3, Hamranesi

Skipulagsstofnun staðfesti 17. desember 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem samþykkt var í bæjarstjórn 6. nóvember 2024.

Í breytingunni felst breyting á skilmálum fyrir miðsvæði M3 þar sem heimilað er að fjölga íbúðareiningum á hjúkrunarheimili úr 80 í 96, en auk þess eykst nýtingarhlutfall á lóð úr 1,0 í 1,1 og byggingarmagn sem því nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.