Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

21. janúar 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps vegna landbúnaðarsvæðis að Reykjalundi

Skipulagsstofnun staðfesti 21. janúar 2025 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. desember 2024.

Í breytingunni felst að frístundabyggð F87 í landi Reykjalundar er minnkuð um rúmlega 1 ha og er afmörkun svæðisins eftir breytingu eins og hún var samkvæmt eldra aðalskipulagi. Landbúnaðarsvæði L2 stækkar sem breytingunni nemur.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.