Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

26. ágúst 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 vegna nýs efnistökusvæðis E31, Minna Mosfell

Skipulagsstofnun staðfesti, 26. ágúst 2025, breytingu á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 27. júní 2025.

Í breytingunni felst að landnotkun á um 2,49 hektara svæði er breytt úr landbúnaðarsvæði L2 í efnistökusvæði E31. Gert er ráð fyrir að náman geti náð yfir um allt að 2,49 hektara svæði fyrir efnistöku, allt að 49.900 m³.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í https://skipulagsgatt.is/issues/2024/1299 Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.